Það býr leiðtogi innra með okkur öllum og eitt mikilvægasta verkefni lífsins er að gefa þessum leiðtoga rödd og áhrif. Sannur leiðtogi leggur sig fram um að hafa áhrif til góðs og nýtir hugrekki sitt til að leysa úr læðingi eigin krafta sem og annarra.
Í bókinni Hugrekki til að hafa áhrif deilir Halla reynslu úr lífi og starfi sem og sögum af fyrirtækjum og fólki sem hafa virkjað krafta sína til góðra verka og þannig náð bæði miklum árangri og fundið innri gleði. Bókinni er ætlað að veita lesandanum innblástur til að bæta sig og sitt samfélag og í henni má finna fjölda góðra ráða, hvetjandi sögur, hugleiðingar og gagnlegar spurningar sem efla leiðtogann innra með okkur.
„Ég hef þá einlægu trú að allar breytingar byrji með einni manneskju sem hefur hugrekki til að hafa áhrif og fær fleiri með sér í lið. Ég vona að þú finnir þinn stað, þinn málstað til að leiða breytingar til góðs og minni þig á að allar breytingar byrja með góðu fólki sem ákveður að starfa með öðru góðu fólki að því að gera heiminn eilítið betri í dag en í gær. Ef við veljum að taka þátt, gera gagn og láta gott af okkur leiða, þá eru í reynd okkar björtustu tímar fram undan.“
Halla Tómasdóttir er forstjóri B Team sem starfar á heimsvísu að því markmiði að leiða umbreytingu í viðskipta- og stjórnunarháttum í átt til betra samfélags. Þá hefur Halla unnið hjá stórfyrirtækjum á borð við Pepsi og M&M/Mars, tekið virkan þátt í uppbyggingu Háskólans í Reykjavík og leitt verkefnið Auður í krafti kvenna. Halla var annar stofnenda Auðar Capital, einn stofnenda Mauraþúfunnar sem hélt Þjóðfund árið 2009 og árið 2016 bauð hún sig fram til forseta Íslands. Hún er rekstrarhagfræðingur, frumkvöðull og alþjóðlegur fyrirlesari sem trúir að hugrekkið sé til alls fyrst.
© 2024 Salka (Hljóðbók): 9789935516664
Útgáfudagur
Hljóðbók: 13 april 2024

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 190 stjörnugjöfum
Hvetjandi
Upplýsandi
Innblástur
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 190
Steinunnn
23 apr. 2024
Mér finnst bókin stórkostleg eins og konan sem skrifaði hana og las👏❤️
Sigriður
21 apr. 2024
Frábær bók og góður lestur höfundar
Guðrún K.
29 apr. 2024
Einlæg, fróðleg og hvetjandi bók👏👏👏
Þórdís
5 maj 2024
Virkilega vel.
Erla
21 apr. 2024
Ætti að vera skyldulesning í framhaldskólum, mjög góð bók
Ingibjörg Kristín
3 maj 2024
Frábær bók ég mæli mikið með þessari bók
Guðný
23 apr. 2024
Góð bók og vekur upp margar vangaveltur.
Jóhanna
7 maj 2024
Innblástur
Anna Sigríður
29 apr. 2024
Hvetjandi, fræðandi og einlæg frásögn. Naut þess að hlusta.
Helga & Rakel
27 maj 2024
Spennó
Íslenska
Ísland